Samu

Saga fyrirtækjanna

Fyrirtækið S. Stefánsson & Co. var stofnað af Sæmundi Stefánssyni 1942 og hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki nú rekið af öðrum og þriðja ættlið. Haukar hf. var annað fyrir tæki sem rekið var samhliða, heildverslun með vörur frá Zeiss í Þýskalandi. S. Stefánsson var mest með innflutning á vélum (Ruston) og búnaði fyrir skip. Fyrirtækið hóf innflutning á NGK kertum frá Japan sem þá kepptu við hefðbundin merki á markaðnum. Einnig var umboðsverslun fyrir glervörur frá Tékklandi (Glassexport) og snyrtivörur frá Bretlandi (Yardley). Sala á tölvubúnaði og hugbúnaði hófst um 1980, fyrst voru það tölvur frá MSI og síðan Qantel (mainframe). Fyrirtækið hefur nú einbeitt sér að tölvuþjónustu og hugbúnaðargerð. Mótorhjól eru til hliðar sem áhugamál og innflutningur á sérvöru fyrir þann markað.

Zli

Zeissicon

Flutt var inn tækjasamstæða frá Zeiss sem teiknaði kort eftir loft-ljósmyndum hjá Landmælingum Íslands. Hér er uppsetningu lokið með tæknimanni frá Zeiss.


 

 

 

 

Zulf

Rannsóknatæki og smásjár frá Zeiss voru ráðandi á markaði áratugum saman á sjúkrahúsum og rannsókna-stofum. Hér er Úlfar Þórðarson augnlæknir að sýna augnaðgerð á Landakotsspítala 1975.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Qantelsys

Hugbúnaður var hannaður fyrir margþætta starfsemi, fyrst fyrir Qantel tölvur, en vinnslan síðan flutt yfir í (PC) tölvur eins og við þekkjum í dag. Myndin er af uppsettri Qantel tölvusamstæðu frá 1983.

 

 

 

Haukur Upprunalegt merki Hauka hf.

 

Home < Forsíða