Fréttir

Mótorhjól I - DVD

Lokið var við gerð fræðsludisks um mótorhjól á árinu 2010 og kemur hann væntalega á markað í apríl. Diskurinn verður fáanlegur í netsölu og á bensínstöðvum N1.
Efnið er fjölbreytt, allt um verklegt mótorhjólanám og tæknilegur fróðleikur um mótorhjól og aksturs-aðferðir sett fram af fagmönnum á skýran og myndrænan hátt. Nauðsynlegt efni fyrir byrjendur og einnig fyrir vana ökumenn sem vilja ná betri hæfni.

Umsögn yfirlögregluþjóns:

GeirJon

Allir þeir fræðsluþættir sem teknir eru fyrir í myndbandinu eru afar vel útfærðir,
upplýsandi og mjög fræðandi.
Tel allt fræðsluefnið koma sér vel fyrir þá sem hugsa sér að taka bifhjólapróf
og ekki síst mjög gott fyrir alla bifhjólamenn til upprifjunar.
Hef ekki áður séð á einum stað svo yfirgripsmikið fræðsluefni fyrir bifhjólamenn
eins og í þessu myndbandi. Mín niðurstaða er sú að allir verðandi og núverandi
bifhjólamenn þurfi að eignast þetta fræðslumyndband.

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn

Youtube

Demo MP4 Stutt kynning á efni disksins.
YouTube - Smellið á myndina..

 

 

 

 

Jakki

S.Stefánsson & co tók að sér að hanna og láta sauma nýja leðurjakka fyrir mótohjóladeild lögreglunnar.
Hér sést Kristján F. Geirsson lögreglumaður í lögreglu Suðurnesja
við eftirlit á Reykjanesbrautinni.

 

 

 

Bókin Saga lögreglunnar í Keflavík

Keflog

S. Stefánsson & Co. ehf., tók að sér útgáfu bókarinnar en Lögreglufélag Suðurnesja
sér um sölu og dreifingu. Höfundur bókarinnar er Einar Ingimundarson.
Ábyrgðarmenn eru lögreglumennirnir Karl Hermannsson og Jóhannes Jensson.
Bókin er prentuð í Póllandi og kemur ú í nóvember 2014.

 

Home < Forsíða